Ný útgáfa Skógarkolefnis

Helstu breytingarnar voru gerðar á köflum 2.2 og 3.3 frá eldri útgáfu:

  • Megintilgangurinn var að skerpa lýsinguna á því hvernig gerð skógræktaráætlunar skuli fara fram og einfalda kortlagningarreglur en jafnframt að leggja áherslu á tilgang skógstjórnunaráætlunar fyrir sannprófunarferlið.

  • Sömuleiðis þurfti að skerpa á kröfunum í kafla 3.3 til að skýra áreiðanleika niðurstaðna úr Skógarkolefnisreikni.

  • Loks voru gefnar út skýrari og sveigjanlegri reglur um kolefnisútreikninga með tilliti til þéttleika gróðursetninga.

Frá því að Skógarkolefni 2.0 kom út hefur komið til sögunnar íslenskur staðall, . Hefur vísunum til hans verið bætt við textann en úreltar tilvísanir fjarlægðar.

Fyrirmynd Skógarkolefnis var breska kröfusettið og fyrsta útgáfa Skógarkolefnis sem kom út í árslok 2019 var að mestu leyti þýðing og staðfærsla á því breska. Vorið 2023 kom út útgáfa 2.0 af Skógarkolefni í samræmi við þróun íslensks laga- og regluumhverfis og tilkomu tækniforskriftarinnar (Carbon offsetting: Specification with guidance) sem er að finna á vef Staðlaráðs Íslands. Eðli slíkra krafna er að vera í sífelldri þróun með stöðugum endurbótum í átt að auknum gæðum og í takti við þróun samfélags og umhverfis.

Skógarkolefni 2.1 er að finna á vefnum skogarkolefni.is. Textinn sem gildir er sá sem er að finna á vefnum og vísa skal til hans þar. PDF-skrá með kröfusettinu er aðgengileg til hagræðis fyrir notendur, svo sem til að prenta út og hafa til lestrar en ekki til að vísa í.