Ný viðbót við kröfusett Skógarkolefnis

Gefnar hafa verið út leiðbeiningar um úttektaraðferðir í Skógarkolefnisverkefnum. Jafnframt hefur kafli 2.5 í kröfusettinu, sem fjallar um vöktun verkefna, verið uppfærður og nýtt sniðmát fyrir verkefnalýsingu (Project Development Document, PDD) gefið út til samræmis við þær breytingar sem innleiddar voru með Skógarkolefni 2.0. Af þessum sökum hefur Skógarkolefni fengið nýtt útgáfunúmer, 2.2. Helsta breytingin er að nú er kveðið á um að önnur úttekt verkefnis skuli fara fram eigi síðar en tíu árum frá stofndegi í stað fimmtán ára áður.

Ný útgáfa Skógarkolefnis

Skógarkolefni, kröfusett fyrir kolefnisverkefni í skógrækt, er komið út í nýrri útgáfu sem ber númerið 2.1. Nýja útgáfan tók gildi 11. maí 2026. Nýjustu breytingarnar eru minni háttar og er þeim ætlað að veita skýrari upplýsingar um kröfur og leiðbeiningar.

Skógarkolefni á pdf

Kröfusettið Skógarkolefni 2.0 fyrir kolefnisverkefni með nýskógrækt er nú aðgengilegt á pdf-formi til hagræðis fyrir fólk sem vill kynna sér reglurnar.