Skógarkolefni 2.2 komið út

Gefnar hafa verið út leiðbeiningar um úttektaraðferðir í Skógarkolefnisverkefnum. Jafnframt hefur kafli 2.5 í kröfusettinu, sem fjallar um vöktun verkefna, verið uppfærður og nýtt sniðmát fyrir verkefnalýsingu (Project Development Document, PDD) gefið út til samræmis við þær breytingar sem innleiddar voru með Skógarkolefni 2.0. Af þessum sökum hefur Skógarkolefni fengið nýtt útgáfunúmer, 2.2. Helsta breytingin er að nú er kveðið á um að önnur úttekt verkefnis skuli fara fram eigi síðar en tíu árum frá stofndegi í stað fimmtán ára áður.

Nýju leiðbeiningunum um úttektaraðferðir í Skógarkolefnisverkefnum er ætlað að samræma skipulagningu, framkvæmd og úrvinnslu úttekta í verkefnunum. Meðal annars er fjallað um val og staðsetningu mæliflata, skráningu á þéttleika, vexti og heilbrigði trjáa og mæliaðferðir til að meta kolefnisforða. Lýst er úrvinnslu og framsetningu niðurstaðna og hvernig þær eru bornar saman við kolefnisáætlun verkefna. Leiðbeiningarnar taka mið af úttektarreglum Woodland Carbon Code og eru byggðar á íslenskum skógrannsóknum.

Í endurbættum kafla 2.5 í kröfusettinu kemur fram að fyrsta úttekt verkefnis skal fara fram á 5. ári frá stofndegi verkefnis eða verkefnahóps, næsta úttekt fari fram eigi síðar en tíu árum frá stofndegi og eftir það eigi síðar en á tíu ára fresti. Þetta er breyting frá fyrri útgáfu, en þar var gert ráð fyrir að önnur úttekt færi fram á 15. ári. Í kafla 2.5 er einnig skerpt á ákvæðum um gerð úttektaráætlunar sem lögð er fyrir vottunaraðila áður en vettvangsathuganir og mælingar fara fram.

Núna er unnið að heildarendurskoðun annarra krafna og upplýsinga í kröfusetti Skógarkolefnis til samræmis við þessar og fleiri breytingar sem gerðar hafa verið á einstaka köflum og því umhverfi sem kröfusettið starfar í.

Skógarkolefni 2.2 er að finna á vefnum skogarkolefni.is. Textinn sem gildir er sá sem er að finna á vefnum og vísa skal til hans þar. PDF-skrá með kröfusettinu er aðgengileg til hagræðis fyrir notendur, svo sem til að prenta út og hafa til lestrar en ekki til að vísa í.